Select a language for our global site:

Select a country site:
 

Global Compact on Refugees & Global Refugee Forum

Sögulegur samningur fyrir flóttafólk

Árið 2018 komst heimurinn að samkomulagi um nýja leið fram á við fyrir flóttafólk og gestgjafa þess. Samningurinn, sem þekktur er sem Alþjóðleg samþykkt um málefni flóttamanna, hefur að markmiði að efla alþjóðleg viðbrögð við nýju og yfirstandandi flóttamannaástandi og leitast við að tryggja að flóttafólk og fólkið sem tekur á móti því fái stuðninginn sem það þarf.

Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin hafa frá upphafi verið öflugir og virkir stuðningsaðilar Alþjóðlegrar samþykktar um málefni flóttamanna. Á fyrstu tveimur Alþjóðaþingum um flóttamannavandann árið 2019 og 2023 tóku löndin á svæðinu á sig margvíslegar skuldbindingar, lögðu sitt af mörkum með aðgerðum, samstarfi og fjárhagslegum stuðningi og sýndu sterkan vilja til að ná markmiðum Alþjóðlegrar samþykktar um málefni flóttamanna.

Hvað felur samningurinn um Alþjóðleg samþykkt um málefni flóttafólks í sér?

Alþjóðleg samþykkt um málefni flóttafólks – sem samþykkt var af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2018 – er rammi til að auka fyrirsjáanleika og réttlæti ábyrgðar, þar sem tilgreint er að sjálfbær lausn á flóttaaðstæðum finnist ekki án alþjóðlegrar samvinnu. Hún er áætlun fyrir stjórnvöld, alþjóðastofnanir og aðra hagsmunaaðila til að tryggja að móttökusamfélög fái þann stuðning sem þau þurfa og að flóttafólk fái tækifæri til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Hún skapar einstakt tækifæri til að umbreyta því hvernig veröldin bregst við flóttaaðstæðum, sem gagnast bæði flóttafólki og þeim samfélögum sem taka á móti þeim.

Fjögur lykilmarkmið Alþjóðlegrar samþykktar um málefni flóttafólks eru:

  • Létta á þrýstingi á móttökulönd;
  • Efla sjálfstæði flóttafólks;
  • Auka aðgang að lausnum í samstarfi við þriðja land;
  • Styðja aðstæður í upprunalandi fyrir endurkomu með öryggi og reisn.

Alþjóðleg samþykkt um málefni flóttamanna spratt upp úr New York yfirlýsingunni fyrir flóttamenn og innflytjendur frá 2016, sem markaði tímamót og setti fram sýn um víðtækari og réttlátari viðbrögð við flóttamannavanda.

Frekari upplýsingar um Alþjóðlega samþykkt um málefni flóttamanna

Stafrænn vettvangur

Á stafrænum vettvangi um Alþjóðlega samþykkt um málefni flóttamanna getur þú fengið yfirlit yfir skuldbindingar, séð framganginn og skoðað góða starfshætti.

UNHCR í stuttu máli

Fáðu helstu upplýsingar um Alþjóðlega samþykkt um málefni flóttamanna í þessum spurningum og svörum frá UNHCR.

Bæklingur um Alþjóðlega samþykkt um málefni flóttamanna

Í þessum bæklingi getur þú lesið Alþjóðlega samþykkt um málefni flóttamanna í heild sinni.

Alþjóðaþing um flóttamannavandann

Alþjóðaþing um flóttamannavandann sem haldið er á fjögurra ára fresti, gerir ríkjum og öðrum aðilum kleift að koma saman til að deila góðum starfsháttum og leggja sitt af mörkum með fjárhagslegum stuðningi, tæknilegri sérfræðiþekkingu og stefnubreytingum til að hjálpa til við að ná markmiðum alþjóðlegu samþykktarinnar um málefni flóttafólks. Fyrsta alþjóðaþingið um flóttamannavandann fór fram í desember 2019 og var áfangi í því að byggja upp samstöðu meðal flóttafólks heimsins og í löndunum og samfélögunum sem hýsa þau. Frekari upplýsingar má finna í skýrslunni „Útkoma Alþjóðaþings um flóttamannavandann 2019“.

Annað Alþjóðaþing um flóttamannavandann fór fram í Genf í Sviss árið 2023. Rúmlega 4.200 þáttakendur frá 168 löndum sóttu þingið, þar á meðal 300 fulltrúar flóttafólks. Fleiri en 1.600 skuldbindingar voru gerðar til að styðja við flóttafólk og samfélög sem taka á móti þeim. Stjórnvöld ríkja og aðrir þátttakendur á þinginu tilkynntu skuldbindingar upp á 301 milljarð króna í fjárframlög, þarf af koma 34 milljarðar frá fyrirtækjum og einstaklingum. Stuðningur sem þessi er vonarglæta fyrir þá 36 milljón flóttamenn sem nú eru á flótta víðsvegar um heim.

Smelltu hér til þess að lesa meira um Alþjóðaþingið um flóttamannavandann 2023. 

 

Switzerland. Stakeholders announce new pledges on day two of the Global Refugee Forum 2023

.

Switzerland. Opening plenary session of the Global Refugee Forum 2023

Switzerland. Final plenary and closing ceremony on day three of the Global Refugee Forum 2023

Switzerland. Journalism mentee leads conversations at Global Refugee Forum

Fréttir af Alþjóðlegri samþykkt um málefni flóttamanna og alþjóðaþingi um flóttamannavandann