Close sites icon close
Search form

Leitaðu að vefsíðu landsins

Upplýsingar um lönd

Vefsíða fyrir land

Starfsemi okkar

Starfsemi okkar

Starfsemi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi heyrir undir fulltrúa Flóttamannastofnununar Sameinuðu þjóðanna fyrir Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin, sem annast einnig Danmörku, Eistland, Finnland, Lettland, Litháen, Noreg og Svíþjóð. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur starfað á þessum slóðum frá árinu 1985.

Aðalskrifstofu fulltrúa Flóttamannastofnununar Sameinuðu þjóðanna fyrir Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin má finna í Stokkhólmi. Að auki, eru þrjár aðrar tengiskrifstofur sem staðsettar eru í Riga, Tallinn og Vilnius.

Flóttamannastofnunin dreifir lífsnauðsynlegum gögnum um allan heim til að tryggja vernd og réttindi skjólstæðinga sinna og leitast við að finna varanlegar lausnir.

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna er í virkum samskiptum við stjórnvöld, borgaraleg samtök og fjölmiðla til þess að standa vörð um réttindi og vellíðan einstaklinga sem hafa neyðst á flótta.

Ásamt samstarfsaðilum og samfélögum vinnum við að því að tryggja öllum rétt til að sækja um hæli og leita öruggs skjóls í öðru landi. Við leitumst einnig við að tryggja varanlegar lausnir við aðstæðum þeirra.

Við vinnum með og aðstoðum stjórnvöld og frjáls félagasamtök í framlagi þeirra til flóttamannaaðstoðar um heim allan og felst samvinnan í því að leita lausna fyrir fólk sem neyðst hefur til að flýja heimili sín.

Á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum er hlutverk UNHCR ekki bein aðstoð við flóttafólk og hælisleitendur.

Helstu hlutverk fulltrúa Flóttamannastofnununar Sameinuðu þjóðanna fyrir Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin eru meðal annars að:

  • Styðja við stjórnvöld í innleiðingu Evrópu- og alþjóðalaga í tengslum við hæli, vernd og einstaklinga án ríkisfangs. Í því felst að aðstoða aðila sem sjá um mál heilisleitenda í viðkomandi landi við að innleiða sanngjarna, skilvirka og vandaða málsmeðferð umsóknar um vernd, þ.m.t. barnvænt verklag. Starf okkar felst einnig í markvissum og gagnreyndum stuðningi, lögfræðilegum ábendingum, lögfræðiráðgjöf og þjálfun sérfræðinga og opinberra starfsmanna.
  • Sjá um að hælisleitendur hafi aðgang að löndum á svæðinu, geti sótt um vernd og að þeir haldi sínum réttindum, sem tekur mið af aldri þeirra, kyni og uppruna.
  • Ráðleggja ríkisstjórnum, samstarfsaðilum og öðrum hagsmunaaðilum um leiðir til að hjálpa flóttafólki við að aðlagast löndum á svæðinu - og hvernig lönd geti stuðlað að fleiri öruggum leiðum fyrir flóttafólk til að fá vernd. Þessi starfsemi felur í sér að kynna mikilvæg tengslanet og deila góðum starfsvenjum.
  • Hvetja ríkisstjórnir til að finna lausnir á þeim áskorunum sem ríkisfangslausir einstaklingar standa frammi fyrir innan landamæra þeirra og takast á við mál sem gætu aðstoðað við að útrýma ríkisfangsleysi.
  • Auka vitund um ástand flóttafólks á heimsvísu og aðstæður þeirra milljóna sem hafa neyðst til að flýja – og auka meðvitund og skilning á málefnum flóttamanna. Það felur í sér að fá fjölmiðla og almenning til liðs við okkur, til dæmis með því að bregðast við á réttum tíma og taka þátt í opinberum viðburðum þar sem málefni flóttafólks er um að ræða.
  • Útvega efnahagslegan og annarskonar stuðning fyrir starf Flóttamannastofnunarinnar á heimsvísu frá fjölda áhrifavalda, eins og ríkisstjórnum, stofnunum, fyrirtækjum og almennum borgurum.

Lestu meira um starf okkar á mismunandi svæðum: