Fræðsla um flóttafólk: Aldur 12-15

Verkefni á þessu aldursbili beinist að hæfni nemendans til að setja í samhengi hvernig hugtakið og veruleiki flóttafólks passar í líf þeirra. Lögð er áhersla á getu nemenda til að sýna samkennd og að efla skilning sinn á grunnhugtökum um flóttafólk, umsækjendur um alþjóðlega vernd og farandfólk.

Jafnframt hvetur kennsluefnið til gagnrýninnar hugsunar.

Mynd- og hljóðefni fyrir þennan aldurshóp segja sögur af börnum á flótta á sama aldri og nemendur með því að ræða kunnugleg og viðeigandi efni, líkt og hvers vegna og hvernig yfirgefur fólk heimili sín, hvernig það er komið til nýs lands og framtíðardrauma. Nemendur á þessu aldursbili eru hvattir til að færa skilning sinn úr skólastofunni yfir í aðrar daglegar athafnir lífs síns.

Grunnhugtök

Fyrir þennan aldurshóp mælum við með því að nemendum séu kennd grunnhugtök um málefni flóttafólks, umsækjenda um alþjóðlega vernd og farandfólks, þar sem þau hugtök veita grunn að frekari skilning um málefnið.

Skref 1 – Horfðu á myndskeiðin

Mælt er með því að kennarar og nemendur horfi fyrst á útskýringarmyndskeiðin um flóttafólk, farandfólk, fólk á flótta innanlands og umsækjendur um alþjóðlega vernd (í þessari röð).

Skref 2 – Parið myndskeiðin og kennslublöðin saman

Notið tilheyrandi kennslublöð til að setja saman kennsluáætlun. Fyrir hvert grunnhugtak, er gott að einbeita sér að því hvar fólk er (í eigin landi eða ekki), hvers vegna það er þar sem það er (ástæður fyrir að vera á flótta eða fyrir flutningum) og hver réttindi þeirra eru. Hvert myndskeiðsverkefni tekur rúmlega 15 mínútur. Þú getur parað myndböndin við annað kennsluefni, ef þér þykir það henta.

Að vera á flótta innanlands

Umsækjandi um alþjóðlega vernd

Leiðbeiningar um skólaverkefni

Til þess að færa hið flókna viðfangsefni flóttafólks, umsækjenda um alþjóðlega vernd og farandfólks nær daglegu lífi 12 til 15 ára ungmenna getur þú valið nokkur verkefni úr kennsluleiðbeiningunum hér að neðan. Verkefnin eru mislöng og hægt er að samþætta þau inn í ýmis kennsluumhverfi og staðsetningu, innan veggja skólans eða í nánasta umhverfi hans.

Myndskeiðsæfing

Horfið á myndskeiðið með nemendum og notið kennslublaðið til þess að framkvæma verkefni og spyrja nokkurra spurninga. Verkefnin taka á bilinu 15-30 mínútur.

Saga Hassan og Youssof 

Hassan og Youssof eru 14 og 15 ára gamlir. Bræðurnir flúðu frá Sýrlandi ásamt föður sínum Suheil, sem er karate kennari, og móður sinni, systur sinni og þremur bræðrum. Þau fóru fyrst til Jórdaníu en fengu síðan aðsetur í Lúxemborg.  Þeir hafa gaman af að vera í skólanum á meðan pabbi þeirra kennir karate. Bræðurnir eru einnig í karate og segja frá lífi sínu í nýja landinu.